Baráttan harðnar hjá Eiði Smára

Ég fór á Nývang í gærkvöldi og horfði á Barcelona vinna Celta Vigo 3-1. Ég er smeykur um að Guðjón Þórðar hefði verið orðinn ókyrr mjög á bekknum, þótt hann væri kannski ekki farinn að berja varamannaskýlið að innanverðu að hætti Rocky Balboa. Það gerði Frank Rijkaard á dögunum þegar hann horfði á Barcelona steinliggja gegn Espanyol hérna í borginni.  Ógæfa FC Barcelona lagðist svo illa í Hollendinginn hrokkinhærða að það sauð á honum. 

Rijkaard var meira að segja berhentur þegar hann braut sig í gegnum hliðarrúðuna á varamannaskýlinu á Olympíufjallinu eins og hann væri að slengja hendinni í gegnum baðvatnið heima hjá sér. Hann var fínn í tauinu þá og líka í gærkvöldi og lét Eið Smára fá röskar tíu mínútur. Það yljaði manni að sjá glókollinn hlaupa inn á. Hann er kallaður “Íslendingurinn” í blöðunum, en “Saltfiskurinn” hérna í Poblenou hverfinu.  Áhorfendur fögnuðu honum ákaft og Eiður strauk Saviola föðurlega um vangann þegar hann steig inn á snöggklipptan Nývanginn.  

Eiður leysti sum sé helsta keppinaut sinn um sæti í Barca-liðinu af hólmi, en smávaxni hlaupagikkurinn Saviola, skoraði með skalla í leiknum. Hann var langlægstur í teignum en líklega svo lítt áberendi að enginn í Celta-liðinu nennti að valda hann. Þarna varði Saviola sæti sitt í byrjunarliðinu að öllum líkindum og aftur þarf Eiður Smári þá að byrja á bekknum því Giuly skoraði líka. Saviola klúðraði nú samt tveimur svakalega fínum færum og fékk lítillega á baukinn í blöðunum í morgun. Annars hefur hann verið í miklu uppáhaldi undanfarið enda skorar hann grimmt og mörkin telja hérna í Katalóníu.

Þeir eru stöðugt bornir saman hann og Eiður og nú er Saviola með vinninginn. Maður var svona að gæla við að Saviola væri bara að setja í einhverjum miðlungs bikarleikjum en mörkin hans í deildinni sýna að það er enginn hvítvoðungsbragur á leikstílnum hjá honum. Enda eru forkólfar Juventus alveg eins og breimandi kettir uppi á Nou Camp að reyna að véla Saviola til Tórínó. En þetta var ekkert sérlega fjörugt á Camp Nou í gærkvöldi þótt mörkin yrðu fjögur. Börsungar sýndu á fáeinum köflum fantatakta og kynngimagnaðar sendingar.  Langtímum saman lék Barca-liðið samt einhverja útgáfu af svefndrykkjulegum göngubolta, sem einkenndist af letirakningum um allan völl, aðallega þó á sínum eigin helmingi. Þetta var nú bara kallað leti í Dýrafirðinum í gamla daga.  Þeir virtust í öllu falli ekki miklir áhættufíklar Barca-drengirnir í gærkvöldi þar sem þeir virtust allir hafa sammælast um að hanga í  eigin landhelgi og reyna að koma boltanum á Ronaldinho sem átti að gera eitthvað ævintýralega sniðugt. Þetta er endurtekið efni frá síðustu leikjum. Boltinn er frekar sendur á Ronna tví- og þrívaldaðan en á gagnstæða kantinn þar sem allt er opið. Og svo lánast ekki alltaf galdurinn hjá Ronaldinho og þá fær hann skammir í blöðunum. Þær voru nú samt eitthvað minni núna en undanfarið því Ronni skoraði úr víti. Vítið var svona á mörkunum, brotið var á gráu svæði á jaðrinum, en ásetningurinn var þarna og refsingin alveg hæfileg fannst áhorfendum sem voru hartnær jafnmargir og allir Reykvíkingar. Gaman að heyra þá öskra alla í einum kór.   Okkar maður, hann Eiður, fiskaði horn, hljóp mikið, var oft frír, en fékk sjaldan boltann, þetta voru svona knattrakningaræfingar og einnar snertingar kúnstarbolti í lokin, meira svona léttleiki til hliðanna en framsækni. Við verðum að vona að Eiður fái meiri tíma næst, hann var kvikur og kaldur að leika á menn í gærkvöldi, en færin vantaði.   Eftir leikinn tók mig klukkustund að finna bílinn minn aftur, mannmergðin var svo svakaleg sem rann út um hliðin á Nývangi og þarna í kring eru allar götur eins, öll húsin örugglega hönnuð samkvæmt innblæstri frá einum og sama arkitektinum. Mér til happs lagði ég á minnið “Chile-götuna” og þar stóð Fordinn allur dældaður og dapur. Katalanar skrifa Chile með x-i, þ.e. Xile. Það er svona svipað og við myndum stafsetja þetta ágæta land svona:  Síle.
mbl.is Barcelona endurheimti toppsætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólþurrkuð jól í Barcelona

Loksins er kominn vetur hérna í Barcelona.

Varla er samt hægt að segja að frosið hafi saman sumar og vetur hér í Katalóníu, því hitinn er að slæpast þetta í kringum 17 gráðurnar. Leikmenn FC Barcelona komnir í langþráð jólafrí og færðu unnendum sínum bara eitt stig í jólagjöf. Ekki var Eiður Smári á skotskónum en Rónaldinjó skoraði af gömlum vana.  Á jóladag er heiðskírt í Barcelona og logn. Eitthvað annað en heima þar sem jólaseríurnar hafa flaksast í vindinum eins og þvottasnúrur þegar best lætur;  og ekki hefur verið hægt að sjá ástandið í Bolungarvík því vefmyndavélin hans Hauks Vagnssonar vinar míns er eins og martíníinn hans James Bond, shaken, not stirred. Svona leikur nú íslenska fárviðrið lifendur og dauða. Þannig hefur vestfirska vetrarveðrið áhrif alla leið hingað til Barcelona af því að maður er tengdur Vagnssonar-vélinni í gegnum gamla koparvírinn og Internetið. Ég sæki oft í Vagnssonar-vélina til að ná tengingu við upprunann og allífið. ( www.webcam.is) 

sma_bjork_gunnar_gledileg_jol

Við erum loksins öll komin í jólafrí. Svakaleg traffík á menntaveginum hjá okkur öllum í blálokin, próf og tölur og ritsmíðar vinstri, hægri. Nú er það liðið eins og árið verður brátt í aldanna skaut. Ég fór í vikunni fyrir jól á jólaskemmtun hjá Gunnari syni mínum, en í Marbella skólanum hans hafa safnast saman börn úr flestum hornum heimsins;  þeldökk og fagureyg frá fyrrum lendum Ídí Amíns í Úganda, litlir snáðar frá Suður-Ameríku, líklega afkomendur Inkanna herskáu í Perú sem eitt sinn áttu í höggi við spænska fanta vestur í Ameríku, ljóshærði Víkingurinn minn hann Gunnar Arnarson (líka herskár), afkomandi Gísla Súrssonar úr Haukadal, hnokkar frá Kína sem eiga áa sem reistu langa vegginn sem er þræddur eftir fjalllendi Kína eins og lakkrísreim, indverskir drengir, unnendur karrís og Gandís sem barðist af svo svakalegri hörku að hann gerði ekkert nema að standa kyrr með stafprikið sitt, og svo líka firna fríð börn austan úr Persíu og Arabíu sem fylgja slæðuklæddum mæðrum sínum í skóla á hverjum morgni.   

Það var alveg hreint magnað að sjá þennan glæsilega hóp syngja saman Heims um ból í kirkjunni í Poblenou hverfinu og ekki sá ég nokkurn mann fúlan yfir að þessi fjöltrúarbragða hersing syngi saman sannkristið jólalag. Allir voru eitthvað svo friðsamir og meyrir, og foreldrarnir fullir af stolti yfir því að andi jólanna væri loksins búinn að hreiðra um sig, jafnvel í hinum hörðnuðustu hjörtum.    Lengi lifi jólin, og hér eru þau sko ekki bara jólin hans Mammons.    Ég held að Mammon heiti núna Pokemon.

Hvað er klukkan á Þingvöllum... í Barcelona?

Barcelona er stórmerkileg borg. Á nýtískulegri kaffistofu nærri skólanum mínum, við götu Heilags Gervasi, sem nánar tilteikið er í hlíðum Tibidabo, hanga fáeinar klukkur á einum veggnum.

Það er í sjálfu sér ekkert merkilegt nema hvað að þessar klukkur sýna svo ekki verður um villst hvernig tíminn líður á fjölmörgum stórmerkum og afskekktum stöðum á jarðkringlunni. Þetta er sko ekkert London, Tokíó, Róm sem löngu er orðið útvatnað eins og lélegur saltfiskur. Ein klukkan sýnir nákvæmlega upp á sekúndu hvað klukkunni miðar á Þingvöllum. Þannig að næst þegar þið viljið vita hvað klukkan er á gamla góða Lögbergi, þá getið þið hringt í mig.

Það má ekki gleyma að taka það fram að Þingvellir eru ritaðir með Þonni hjá þeim katalónsku og fá þeir prik fyrir það og líka hitt að láta Eið Smára vera í byrjunarliðinu hjá Barca.


Um bloggið

Jorn

Höfundur

Jón Örn Guðbjartsson
Jón Örn Guðbjartsson
Jón Örn Guðbjartsson er blaðamaður. Hann stundar nám í stjórnun (MBA) og almannatengslum í Barcelona ásamt því að vinna fréttapistla fyrir Stöð 2.
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • sma bjork gunnar gledileg jol

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 1751

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband